Fjörgyn

Lionsklúbburinn Fjörgyn 

Stofnaður 14. maí 1990

Klúbbur númer 050538 á svæði 8 í umdæmi (MD) 109A

Fjörgyn leggur ríka áherslu á að beita sér fyrir velferð barna og unglinga

Starfsárið

Klúbbstarfið

páskabingó Fjörgynjar

21. mars 2024

Styrkur til Umhyggju

Á félagsfundi þann 22. febrúar 2024 veitti Chien Tai Shill móttöku styrk Fjörgynjar, fyrir hönd stjórnar Umhyggju. Styrkurinn er afrakstur tónleika Fjörgynjar sem haldnir voru í nóvember 2023. Á fundinum voru einnig umdæmisstjóri, Friðrik Hansen Guðmundsson, og 10 félagar úr Lkl. Baldri. Umdæmisstjóri veitt nokkrum félögum aldursviðurkenningar alþjóðaforseta.

Herrakvöld Fjörgynjar

BUGL fær nýjan tækjabúnað

Frétt af heimasíðu Landsspítalans

Blóðsykurmælingar

Nóvember er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions, en margir ganga með dulda sykursýki, sem er hættulegur sjúkdómur. Þann 18. nóvember bauð Fjörgyn, í samstarfi við Lkl Fold, upp á fría blóðsykurmælingu í anddyri Húsgagnahallarinnar á Bíldshöfða í samvinnu við heilbrigðisstarfsfólk. Í heildina voru mældir 639 einstaklingar þar af þurfti að ráðleggja nokkrum að leita til læknis til að fá skýringu á verulega háum blóðsykri.

Stórtónleikar Fjörgynjar

9. nóvember 2023.

Léttfundur

Þann 28. september 2023 skelltu Fjörgynjarmenn sér í böðin í Hvammsvík í Hvalfirði. Dýrindis kvöldmatur etinn í heimahúsi í Kjósinni.

Nýtt starfsár hafið

Stjórn Fjörgynjar bauð til grillveislu í Hlöðunni í Gufunesi þann 24. ágúst síðastliðinn. 

Nýr umdæmisstjóri

Dagana 19. og 20. maí síðastliðinn var Lionsþing 2023 haldið á Akureyri. Á þinginu var Friðrik Hansen Guðmundsson, félagi í Fjörgyn, kjörinn umdæmisstjóri fyrir umdæmi 109A starfsárið 2023-2024. Við félagarnir erum stoltir af okkar manni. 

Broskallar í Kenía

Styrktarfélagið Broskallar safnar fé til að hjálpa nemendum í fátækrahverfum í Afríku, mest í Kenía, til að komast í háskóla með því að gefa þeim tækifæri til að æfa sig og ná þannig þeirri kunnáttu sem þarf til að standast inntökupróf í háskóla. Starfsemin fer fram í gegnum verkefnið „Menntun í ferðatösku“ en það inniheldur spjaldtölvur fyrir nemendur og fyrir verkefni sem þeir leysa á tölvunum nemendur Broskalla  sem hægt er að geyma í rafrænu veski. Fyrir rafmyntina geta nemendur keypt smávöru eins og ávexti, snarl og matvöru. Námið leiðir þannig til þess að hægt er að versla nauðsynjar fyrir fjölskyldu nemanda, sem felur jafnframt í sér hvata til þess að stunda námið. 

Á síðasta félagsfundi var Gunnari Stefánssyni, upphafsmanni broskallaverkefnisins, afhendur styrkur Fjörgynjarmanna til verkefnisins. Styrkurinn verður notað til þess að hefja ný verkefni í tveimur skólum í Kenía, með sérstakri áherslu á menntun stúlkna. Verkefnin verða í nafni Lionsklúbbsins Fjörgynjar.

Lionshreyfingin

Að gerast félagi